Nemendur á listnáms- og hönnunarbraut kynna lokaverkefni sín í næstu viku
Frá og með næstkomandi mánudegi, 4. maí, verður því samkomubanni sem hefur verið í gildi frá 16. mars sl., aflétt með ákveðnum takmörkunum. Eftir sem áður gildir tveggja metra reglan svokallaða en í stað 20 manns verður heimilt að 50 manns verði í sama rými. Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni koma nemendur í þrettán verknámsáföngum í VMA í skólann í næstu viku, margir þessara nemenda útskrifast í maí.
Einn áfanganna er á listnáms- og hönnunarbraut þar sem nemendur vinna lokaverkefni sín. Að þessu sinni er nemendahópurinn óvenju stór eða tuttugu nemendur. Margir þessara nemenda eru að ljúka námi sínu af listnáms- og hönnunarbraut í vor. Umsjón með lokaverkefnunum hafa Björg Eiríksdóttir og Helga Björg Jónasardóttir.
Sýning á lokaverkefnum nemenda á listnáms- og hönnunarbraut í Listasafninu á Akureyri – Ketilhúsi hefur verið fastur liður við lok hverrar annar og til stóð að sú sýning yrði dagana 9. til 17. maí nk. Vegna Covid 19 faraldursins hefur sýningunni verið aflýst en Björg Eiríksdóttir kennari segir að nemendum í lokaverkefnisáfanga núna bjóðist að sýna verk sín í Ketilhúsinu á lokaverkefnissýningu nemenda á haustönn sem hefur verið dagsett 21. til 29. nóvember 2020. Björg segir að nemendur hafi sýnt mikinn skilning á því að ekki væri unnt að efna til sýningar á verkum þeirra núna í maí en jafnframt hafi þeir verið ánægðir með að fá tækifæri til þess að sýna verk sín í nóvember, á sameiginlegri sýningu með nemendum sem vinna lokaverkefni sín á haustönn.
Eins og vera ber eru lokaverkefni nemenda afar fjölbreytt – myndlistarverk, textílverk og tónlistarsköpun. Einn af útskriftarnemendunum hefur samið tónlist og mun flytja hana með hljómsveit á lokuðum brautskráningartónleikum, þar sem einungis verða prófdómarar. Fleiri nemendur hafa samið tónlist og gert myndbönd og teiknimynd við hana – afraksturinn verður sýndur á skjá fyrir prófdómara í M01.
Í næstu viku munu lokaverkefnisnemendur setja upp myndverk sín í M01. Þetta verður ekki opinber sýning, heldur einungis til námsmats. Sýninguna kalla nemendur „Þetta reddast“. Björg segir að síðan verði sá háttur hafður á að föstudaginn 8. maí eigi kennarar á listnámsbraut, sem jafnframt verða prófdómarar, viðtöl við hvern og einn nemanda og leggi mat á lokaverkefni þeirra.