Ný stjórn Þórdunu tekin við
28.04.2019
Fyrir helgina var, eins og venja er til, efnt til formlegra lyklaskipta þegar ný stjórn nemendafélagsins Þórdunu tók við stjórnartaumunum. Sigríður Huld skólameistari stýrði athöfninni sem fram fór í Gryfjunni. Hilmar Friðjónsson tók þessar myndir af lyklaskiptunum.
Eins og fram hefur komið eru eftirtalin í stjórn Þórdunu:
Formaður: Eyþór Daði Eyþórsson.
Varaformaður: Ylfa María Lárusdóttir.
Ritari: Anna Kristjana Helgadóttir.
Skemmtanastjóri: Embla Björk Jónsdóttir.
Eignastjóri: Hrafnhildur María Ríkharðsdóttir.
Kynningastjóri: Aldís Lilja Sigurðardóttir.
Formaður hagsmunaráðs: Guðrún Katrín Ólafsdóttir.