Önnur sýningarhelgi á 101 Reykjavík
31.10.2014
Fjórða sýning Yggdrasils – leikfélags VMA á 101 Reykjavík eftir Hallgrím Helgason í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar verður í kvöld, föstudaginn 31. október, kl. 20 og fimmta sýningin verður annað kvöld, 1. nóvember, kl. 20. Sýningarnar eru í Rýminu, Hafnarstræti 57 (gömlu Dynheimar).
Almennt verð á sýninguna er kr. 2500 en félagar í nemendafélögum VMA og MA fá miðann á 2000 kr. Þá miða er ekki
hægt að kaupa í gegnum vefinn, heldur þarf að kaupa þá í miðasölu Menningarhússins Hofs. Síminn þar er 450 100. Einnig er
hægt að kaupa miða í Samkomuhúsinu sýningardagana og hefst miðasalan þremur tímum fyrir sýningar. Þá verða miðar seldir
við innganginn í Rýminu hálftíma fyrir sýningu.
Á vefnum er miðasala á www.leikfelag.is og www.midi.is