Upphaf vorannar og töflubreytingar
Opnað verður fyrir stundatöflur nemenda í Innu föstudaginn 3.janúar kl.13 og verður þá um leið opnað fyrir óskir um töflubreytingar í INNU til miðvikudags 8. janúar kl.12:00.
Nemendur sem hafa ekki verið áður í VMA eða ekki verið í skólanum síðastliðin tvö ár eru boðaðir á fund með námsráðgjöfum þriðjudaginn 7. janúar kl.10:00. Fundurinn verður í M-01.
Nemendur eru beðnir um að kynna sér vel leiðbeiningar um töflubreytingar sem hanga uppi í Gryfjunni, við skrifstofu skólans og eru á heimasíðu skólans.
Útskriftarnemar geta farið til sviðsstjóra og munu fá úrlausn sinna mála á staðnum.
Eftirfarandi þarf að hafa í huga:
- stokkatafla VMA lítur svona út og inn í þessa töflu þurfa flestir áfangar skólans að passa.
- leiðbeiningar varðandi töflubreytingar í INNU.
- beiðnir um töflubreytingar sem byggðar eru á vina- eða kennara-nótunum verða líkast til ekki samþykktar nema mjög góðar ástæður liggi að baki.
- ef nemandi er með 36 tíma í töflu eða meira, er ólíklegt að beiðni um viðbót í töflu verði samþykkt.
- nemendur verða að fylgjast með stundatöflunum sínum í INNU til þess að sjá hvort breytingar hafa verið samþykktar eða ekki.
Sviðsstjórar:
Baldvin Ringsted, sviðsstjóri verk- og fjarnáms (baldvin@vma.is)
Ómar Kristinsson, sviðsstjóri stúdentsprófsbrauta (omar@vma.is)
Harpa Jörundardóttir, sviðsstjóri brautabrúar og starfsbrautar (harpajora@vma.is)
Bestu óskir um gott gengi á vorönn 2020.