Sextíu og níu brautskráðust frá VMA
Í dag, laugardaginn 21. desember, brautskráðust sextíu og níu nemendur frá Verkmenntaskólanum á Akureyri. Þessir 69 nemendur brautskráðust með 85 skírteini af 17 námsbrautum á þriðja og fjórða hæfniþrepi.
Benedikt Barðason, skólameistari, sagði í ávarpi sínu að á útskriftardegi væri hann stoltur af nemendum og aðstandendum þeirra, samstarfsfólki í VMA og fyrir hönd Norðausturfjórðungs landsins sem hafi fengið þennan hóp brautskráningarnema sér til fylgdar.
„Ég veit ekki hvort fólk geri sér almennt grein fyrir hversu stór Verkmenntaskólinn er eða hver þýðing hans er fyrir samfélagið. Í Verkmenntaskólanum eru um 1000 nemendur og 120 starfsmenn í stofnun sem fær tæpa tvo milljarða úr ríkissjóði árlega. Í Verkmenntaskólanum eru nemendur skráðir á 35 námsleiðir á haustönn og héðan brautskrást um 250 nemendur á hverju ári. Tæplega helmingur þeirra lýkur námi til starfsréttinda. VMA er stærsti skólinn utan höfuðborgarsvæðisins og er vandfundinn skóli á Íslandi með fjölbreyttara námsframboð.
Þrátt fyrir styttingu námstíma og fækkunar í árgöngum hefur verið rífandi aðsókn á margar námsleiðir og grípa hefur þurft til fjöldatakmarkana. Þessu fylgja ýmsar áskoranir.
Íþrótta- og lýðheilsubraut er vinsælasta brautin til stúdentsprófs hjá nýnemum í Verkmenntaskólanum á Akureyri og koma nemendur víða að. Á sama tíma er ekki íþróttahús við Verkmenntaskólann og þarf því að kenna íþróttir á fjórum stöðum á Akureyri, Naustaskóla, Lundarskóla, Íþróttahöllinni og Boganum.
Mikil aðsókn hefur verið í iðn- og starfsnám í Verkmenntaskólann undanfarin ár. Sækja næstum tvöfalt fleiri nýnemar um þessar brautir beint úr grunnskóla en á höfuðborgarsvæðinu sé miðað við höfðatölu. Þetta er ágætar fréttir fyrir samfélagið en hjá okkur veldur þetta vaxtarverkjum, sérstaklega þegar kemur að húsnæði og sýnist mér að það styttist í að taka þurfi húsnæði á leigu,“ sagði Benedikt.
Í mörg horn að líta
Skólameistari sagði að hið daglega líf í skólanum snúist mikið um nám og kennslu en þegar horft sé yfir haustönnina komi eitt og annað upp í hugann; heimsmeistari í kraftlyftingum, nýnemahátíð, margir nýnemar, fjórir skiptinemar, spjaldtölvugjöf, öryggisbúnaður, sveinspróf í vélvirkjun, Íslandsmeistaramót í málmsuðu, bygging sumarhúss, Allsherjar- og menntamálnefnd, salsa, boccia, Flensborgarhlaup, lýðheilsuvika, LAN mót, lokaverkefni, heimsókn kokkalandsliðs, íþróttadagur VMA og Lauga, pylsugerð, fyrirlestur um karlmennsku, öryggismál, vinnuvernd eldvarnir, ungskáld, heimsókn úr fimmta bekk, samstarf við eldri borgara, lyftingamót í Gryfjunni, uppistand, svansvottað hús, Amnesty, jólatónleikar, sýning í listnámi, forvarnir gegn fíkn, hangikjöt, jólatónleikar, óveður og brautskráning.
„Þegar af mörgu er að taka þá vandast málið en ég vil nefna þrjú atriði sérstaklega:
Ég vil í fyrsta lagi þakka fyrirtækjum, stofnunum, verkstæðum, verktökum og velunnurum á svæðinu fyrir afar mikilvægan og dyggan stuðning við skólann og nemendur hans. Án ykkar væri starf okkar umtalsvert erfiðara.
Ég vil í öðru lagi þakka stjórn Þórdunu, tæknigenginu, Leikfélagi VMA, öðrum félögum og tengdum aðilum fyrir frábært starf. Stærsta verkefni vorannar eru Sturtuhausinn og stórvirkið Tröll í nýrri leikgerð Jokku G. Birnudóttur og leikstjórans Kolbrúnar Lilju Guðnadóttur. Dans, leikur, tónar og söngur þann 16. febrúar á frumsýningu í Hofi. Miði á Tröll er jólagjöfin í ár.
Í þriðja lagi vil ég þakka fyrir erlent samstarf. Það er mikilvægt sem aldrei fyrr að nemendur kynnist vinnustöðum og jafnöldrum sínum annars staðar. Ár hvert fer fjöldi nemenda og kennara utan til styttri eða lengri tíma og hingað út kemur annað eins. Ég vil hvetja nemendur til þess að taka möguleikum af þessu tagi opnum örmum á lífsleiðinni. Þetta víkkar sjóndeildarhringinn, eykur virðingu og umburðarlyndi auk þess sem svona ferðir fylgja manni jafnan eins og veisla í farangrinum,“ sagði Benedikt.
Skólameistari vék í nokkrum orðum að óveðrinu í síðustu viku og sagði það hafa opinberað veikleika í okkar samfélagi. „Veikleika sem við sem þjóð þurfum að takast á við, bæði í hugsun og framkvæmd. Óveðrið opinberaði líka helstu styrkleika okkar samfélags; ósérhlífni, samheldni og óbilandi dugnað fjölda fólks sem vann dag og nótt að því að aðstoða aðra. Óveðrið minnti okkur líka á að þrátt fyrir allt erum við fólk sem þarf samheldni og kærleik til þess að lifa af,“ sagði Benedikt.
Viðurkenningar
Aþena Eiðsdóttir, nýstúdent af félags- og hugvísindabraut
Verðlaun fyrir bestan árangur í samfélagsgreinum úr Minningarsjóði Alberts Sölva Karlssonar sem var kennari við VMA. Albert Sölvi var frábær kennari, góður félagi og mikill sögumaður og er hans minnst við hverja útskrift með þessum verðlaunum.
Telma Eir Aradóttir, nýstúdent af listnáms- og hönnunarbraut
Verðlaun fyrir bestan árangur í myndlistargreinum, gefin af Slippfélaginu.
Arnór Ingi Helgason, nýstúdent af íþrótta- og lýðheilsubraut
VMA tekur þátt í verkefninu heilsueflandi framhaldsskóli sem er stýrt af Embætti landlæknis. Landlæknisembættið veitir verðlaun til nemanda sem hefur sýnt bestan árangur í greinum sem tengjast heilbrigði og lýðheilsu.
Atli Þorvaldsson, nýstúdent af fjölgreinabraut
Verðlaun fyrir bestan árangur í íslensku. Penninn - Eymundsson gefur.
Almar Daði Björnsson, rafeindavirki
Verðlaun fyrir góðan árangur í faggreinum rafiðna, gefin af Rönning heildverslun.
Hjörvar Már Aðalsteinsson, rafvirki
Verðlaun fyrir góðan árangur í faggreinum rafiðna, gefin af Ískraft heildverslun.
Ahmad Joumaa Naser og Said Khattab Almohammad, rafvirkjar
Verðlaun fyrir dugnað, staðfestu og þrautseigju, gefin af Reykjafelli.
Emilia Niewada, sjúkraliði, nýstúdent og fjallahjólreiðaafrekskona
Hlýtur Hvatningarverðlaun VMA sem eru veitt nemanda sem hefur verið fyrirmynd í námi, sýnt miklar framfarir í námi, starfað að félagsmálum nemenda, haft jákvæð áhrif á skólasamfélagið eða verið sér, nemendum og skólanum til sóma á einhvern hátt. Terra veitir hvatningarverðlaunin.
Emilia fær einnig verðlaun fyrir ágætan árangur í sjúkraliðagreinum, gefin af Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Ásgerður Ragnarsdóttir, rafeindavirki og nýstúdent
Verðlaun fyrir bestan árangur á stúdentsprófi, gefin af A4. Einnig verðlaun fyrir góðan árangur í ensku, gefin af SBA-Norðurleið.
Viðurkenningar fyrir framlag til félagslífs nemenda í VMA:
Berglind Eva Rúnarsdóttir
Elísabeth Ása Eggerz Heimisdóttir
Hrafnhildur M. Ríkharðsdóttir
Karolina Domanska
Þorsteinn Jón Thorlacius
Heimur í sífelldri þróun
Ómar Kristinsson, sviðsstjóri stúdentsprófsbrauta, og Baldvin B. Ringsted, sviðsstjóri verk- og fjarnáms, brautskráðu nemendur.
Til brautskráningarnema beindi Benedikt skólameistari þessum orðum: „Það er líkt á komið með ykkur og VMA að því leyti að ykkar bíða áskoranir. Heimurinn verður síst einfaldari. Hann er í sífelldri þróun og breytingar eru kannski eini fastinn í lífinu. Þau störf sem þið eruð að mennta ykkur til eða stefnið á, kunna að vera gjörbreytt eftir áratug og því lykilatriði að vera opin fyrir sí- og endurmenntun.
Ég vil líka nefna að ykkar bíða forystuverkefni. Þá er ég að tala um forystu í merkingunni að leiða til hins betra. Það að horfast í augu við aðstæður, ógnanir og sjá tækifæri – og virkja fólk til að axla ábyrgð og takast á við áskoranir. Að hlusta, að sýna virðingu, sýna hógværð og ákveðna auðmýkt gagnvart áskorunum er hluti af því að veita forystu.
Berið virðingu fyrir fjölskyldu ykkar og vinum – og því samferðafólki sem verður á vegi ykkar. Berið virðingu og umhyggju fyrir ykkur sjálfum og þeim verkefnum sem þið takið að ykkur í framtíðinni. Ekkert verk er svo lítilmótlegt að það eigi ekki skilið að vera unnið af kostgæfni. Verið stolt af árangri ykkar og horfið björtum augum til framtíðar.“
Ávarp brautskráningarnema og skemmtiatriði
Hrafnhildur M. Ríkharðsdóttir, nýstúdent af listnáms- og hönnunarbraut flutti kveðju brautskráningarnema.
Álfheiður Fanney Ásmundardóttir söng eigið lag og texta við undirleik Vals Freys Sveinssonar og hópur nemenda úr Leikfélagi VMA, með Eyþór Daða Eyþórsson og Emblu Björk Jónsdóttur, í broddi fylkingar sýndu atriði úr söngleiknum Tröllum sem verður frumsýnt í Hofi 16. febrúar nk. Um er að ræða frumsýningu á verkinu hér á landi.
Hilmar Friðjónsson var með myndavélina á lofti á útskriftinni og tók þessar myndir:
Myndaalbúm 1
Myndaalbúm 2
Myndaalbúm 3
Myndaalbúm 4
Myndaalbúm 5