Skúlptúrar í þrívíðri formfræði
27.09.2019
Í einum af áföngunum sem nemendur sitja á öðru ári í myndlist á listnámsbraut VMA er sjónum beint að þrívíðri formfræði og er unnið með hugtök eins og rými, tví- og þrívídd, skugga og myndbyggingu o.fl. sem tengjast skúlptúrum og þrívíðum verkum. Nemendur fá innsýn í hvernig koma megi tvívíðum skissum á þrívítt form í formi skúlptúra.
Við gerð skúlptúranna eru hlutir endurnýttir á ýmsan hátt og útkoman er í senn fjölbreytileg og áhugaverð. Núna gefur að líta nokkra skúlptúra í Gallerí Glugg á aðalgangi VMA sem eru afrakstur vinnu nemenda í áfanga um þrívíða formfræði sem Arna Valsdóttir og Helga Björg Jónasardóttir kenna. Um tuttugu nemendum í áfanganum er skipt í tvo hópa og eru skúlptúrar hóps Örnu nú ti sýnis í Gallerí Glugg.