Til þeirra sem leigðu skáp á vorönn 2020
07.08.2020
Vinsamlegast athugið að þeir sem eiga eftir að tæma skápana sína frá síðustu önn þurfa að bregðast fljótt við þannig að hægt sé að leigja út skápana á nýju skólaári. Nemendur fá frest til þess að tæma skápinn sinn til kl 15:00 þriðjudaginn 11. ágúst. Á miðvikudaginn verður klippt á alla lása og skáparnir tæmdir. Eftir það teljast eigur nemenda til óskilamuna og tekur skólinn ekki ábyrgð á þeim. Þeir sem ekki geta brugðist við fyrir miðvikudag þurfa að setja sig í samband við skrifstofuna í síma 464-0300 eða á netfangið vma@vma.is