Upplýsingar til nemenda vegna innleiðingar á Google
Vakin er athygli á að breytingar hafa orðið á tölvumálum skólans í sumar. Verið er að innleiða G Suite for Education frá Google fyrir alla starfsmenn og nemendur VMA. Margir þekkja þessi verkfæri Google vel og eru að nota þau nú þegar. Skólinn mun nota: Gmail (tölvupóstur), gagnageymsla (Drive), dagatal (Google Calendar), tengiliðir (Contacts), skjöl (Docs), eyðublöð (Forms), töflureiknir (Sheets), skyggnur (Slides) og spjallforritið Hangout.
Markmiðiðin með þessum breytingum eru:
- Auðvelda aðgengi að skjölum
- Efla varnir gegn ruslpósti
- Veita aðgang að nýjum þjónustum
Kennsluforritið Moodle mun áfram verða notað í námi og kennslu en fyrrgreind Google verkfæri notuð til stuðnings, póstsamskipta og geymslu gagna. Innu má jafnframt nota sem kennsluvef og einhverjir kennarar koma til með að gera það.
Notendanöfn og lykilorð
Allir nýnemar ættu nú að vera búnir að fá nýskráningarhlekk sendan á skráð netfang í Innu. Þar sjá þeir notendanöfnin sín (vmaXXXXXX) og geta valið sér ný lykilorð.
Netföng nemenda eru á sama formi: vmaXXXXXX@vma.is.
Þeir nemendur sem eru með eldri lykilorð gætu þurft að endursetja þau til að standast strangar öryggiskröfur hjá Google. Allir sem lenda í vandræðum með lykilorðin sín geta endursett þau á i.vma.is með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Við mælum með að lykilorð séu endursett reglulega af öryggisástæðum, að lágmarki einu sinni á ári.
Spurningar varðandi notendanöfn og lykilorð skal senda á hjalp@vma.is. Einnig má leita til starfsmanns Stefnu, Birgis Más, sem er með skrifstofu í B-álmu skólans.
Einkatölvur
Frá og með haustönn 2017 er ætlast til að allir nemendur komi með sínar eigin fartölvur í skólann. Flestum nemendum dugar að koma með fartölvu sem ræður við ritvinnslu í Google Docs umhverfi. Þetta getur t.d. verið ChromeBook vél en Ubuntu Linux, Mac og Windows vélar ganga að sjálfsögðu alla jafna líka og geta tengst þráðlausu neti skólans.
ATH á rafdeild gilda aðrar reglur og krafa er um að nemendur mæti með Windows vélar og geti sett upp sérhæfð forrit.
Nánari upplýsingar er að finna á upplýsingasíðu á vef skólans.